Fimmtudagur, 26.6.2008
Það er kraftur í Kofra!
Ég hef lifað og leikið mér undir fjallstindinum Kofra frá því að ég man eftir mér, dáðst af honum úr fjarlægð, - en aldrei gengið á Kofra...
Ég hef farið upp að Kofra á snjósleða og notið útsýnisins með allt snævi þakið... en eftir að hafa gengið á Kofra er það bara ekki samanburðarhæft...
Var í fyrsta skipti í gær að sækja Kofratind heim gangandi. Fórum ég og Sigga Ranný systir og tók ferðin upp á efsta hluta Kofratinds tæpa 2 tíma.
Væri það ekki í frásögur færandi, nema að Sigga var að fara upp á Kofra í þriðja skiptið á fjórum dögum.
Ekki var hægt að kvarta yfir veðrinu, logn og heiðskýr himinn og veðrið því eins og best verður á kosið.
Kofri hefur fengið mikið af heimsóknum síðustu vikur og það er margt merkilegt þar að sjá og neðangreindur texti úr Íslenskum þjóðsögum ,,meikar sens" eftir förina.
Nokkrir hafa tekið með sér minjagrip sem sagt er að búi mikill kraftur í... svo mikill að sumir hafa hreinlega sett þá undir koddann hjá sér og segja það hafa mikil áhrif.
Eftirfarandi texta um Kofra er að finna í Íslenskum þjóðsögum eftir Jón Árnason:
,,Þrír staðir hafa verið þekktastir á Íslandi fyrir náttúrusteina. Einn þessara staða er Kofri, en það er einstakur og hár fjallstindur upp úr öðrum lægri fjallgarði í Álftafirði við Ísafjarðardjúp. Þar skal safna náttúrusteinum, einkum á Jónsmessunótt, við tjörn þá sem er uppi á tindinum. Þar er sagt að finnist bæði óskasteinar og aðrir fáséðir hlutir. Óskasteinn heitir svo af því að hvers sem maður óskar sér þegar maður hefur hann fær maður ósk sína uppfyllta.
Hella ein, sem sumir segja að sé hol að innan, er í Kofra og getur af sér hvers konar náttúru á Jónsmessunótt. Sú hella heitir Steinamóðir."
Íslenskar þjóðsögur og ævintýri
Jón Árnason
Steinamóðir
Þess er getið í þjóðsögum að til séu hellusteinar sem geti af sér aðra steina og hafi menn þannig komist fyrir upptök grjótsins og er þar miðað við hina lifandi náttúru, samanber selamóður, flyðrumóður o.fl.
Íslenskar þjóðsögur og sagnir
Sigfús Sigfússon
Myndirnar segja allt sem segja þarf, fleiri í myndasafninu.
Athugasemdir
Hraustur!
Gústi (IP-tala skráð) 27.6.2008 kl. 10:22
Sæll Ómar
Mig bara að segja það að ég var mjög glaður að sjá það að þú skulir hafa ákveðið að vera sveitastjóri í Súðavík út kjörtímabilið. Það stendur til að heimsækja Súðavík í ágúst. Það er í fyrsta skipti síðan við fórum þaðan í hittifyrra. Vonast til að sjá þig meðal annara.
Bestu kveðjur af Hellissandi
Sigurbrandur og Rannveig
Sigurbrandur Jakobsson, 27.6.2008 kl. 18:30
Þakka þér fyrir það Sigurbrandur. Kíkið endilega að kíkja í kaffi þegar þið komið í ágúst. - Súðavík skartar sínu fegurðasta og veðrið er eftir því.
Ómar Már Jónsson, 28.6.2008 kl. 13:47
Duglegur varstu strákur. Ég hef einmitt ætlað að ganga yfir í Héðinsfjörð á hverju í laaaaaangan tíma en hef ekki enn haft mig yfir, en ég skal fara áður en hægt verður að keyra yfir í Ólafsfjörð um Héðinsfjörð ... og nú hef ég bara tíma til haustsins 2009 ...
Takk fyrir myndirnar .
Nemendur Reykjaskóla 1980-1982, 1.7.2008 kl. 10:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.